Borgarferð
Vegna fjölda áskorana hef ég ákveðið að henda inn nokkrum línum á þessa blessaða síðu;)
Nú er ég stödd í borginni, nánar tiltekið í Sveighúsum hjá Báru systur og familíu. Yfirlýst markmið ferðarinnar var að endurheimta Hilmar Þór sem var búinn að eyða viku í faðmi ömmu og afa sem voru svo góð að bjóða honum á fótboltanámskeið í borginni. Hann stóð sig þvílíkt vel þessi elska og svei mér þá ef hann hefur ekki elst um nokkur ár við þetta!
Við Arndís Inga komum sem sagt í borgina á mánudaginn eftir stutt stopp á Skaganum. Ferðalagið gekk mjög vel, Arndís Inga horfði á DVD- spilarann alveg þar til eitthvað ,,ljótt" gerðist og hún vildi ekki horfa meir, þá tók við endurtekin hlustun á Mamma Mia þar til daman gafst upp og sofnaði;) Ég verð nú að segja að ég var alveg að verða búin að fá nóg af þessu lagi og vona að hún taki ástfóstri við einhverju öðru lagi á leiðinni heim:)
Á þriðjudaginn kíkti Elsa Lára í heimsókn til okkar systra og við skelltum okkur á Ítalíu að borða. Þar áttum við ósköp notalega stund saman, spjölluðum og borðuðum góðan mat. Að matnum loknum skelltum við okkur aðeins í Hagkaup og ég náði að versla smá sængjur- og afmælisgjafir á útsölunni þar;)
Á miðvikudaginn skelltum við systurnar okkur með börnin í sumarbústað rétt við Hellu. Það var mjög fínt og að mestu leyti afslappandi (svona eins og það getur verið með þrjá skæruliða:)...þar tókst litlu frænku minni að fá okkur til að hlæja svolítið þar sem henni tókst að verða sér út um varasalvadós og klína gjörsamlega í allt andlitið og hárið á sér. Móðirin lá að vísu við hliðina á henni og las og datt ekkert annað í hug en að litla prinsessan hennar væri steinsofnuð þar sem það heyrðist ekki múkk í henni....þetta var bara snilld og grenjuðum við úr hlátri þegar við sáum hvað hún hafði gert;)
Á fimmtudeginum kíktu Ingunn og Rannveig Harpa til okkar. Það var voða gaman að fá þær og var Rannveig Harpa dugleg að leika við börnin:)
Amman og afinn buðu svo Hilmari Þór og Arndísi Ingu með sér í útilegu í dag (laugardag) og ég hef því bara legið með tærnar upp í loft að mestu, byrjaði á því að sofa í rúma klukkustund eftir að þau fóru en skellti mér svo á Krepputorg að versla gjafir, já nú skal sko sparað í kreppunni og verslað á útsölum! Í kvöld skellti ég mér svo með Björk vinkonu á Ask að borða og er ég nú nýkomin aftur heim í Sveighús og er að hugsa um að fara að halla mér....
Ég stefni svo á Norðurlandið á mánudag eða þriðjudag!
Já þar hafið þið það, þvílíkur og annar eins dugnaður! Nú verður örugglega MJÖG langt í að ég nenni að blogga aftur, þannig að bara NJÓTIÐ VEL:)
Eigið gott sumarfrí elskurnar;)
kv. Helga ofurbloggari

3 Comments:
Gaman að heyra aðeins hvað þið hafið verið að bardúsa í sumar. Knúsaðu sætu systkinin frá okkur :)
Jóhanna og restin af Lúx-genginu
Við erum strax farnar að hlakka til að hitta ykkur næst. Sandra er að spyrja um Arndísi sína og Hilmar sinn. KV. Bára og Sandra
Ég vil fara að fá inn fullt af myndum af litlu frænku minni. Mig langar svo að sjá hana. kv. Bára
Post a Comment
<< Home