Nokkrar myndir
Jæja konan er búin að vera að slæpast í bænum, þannig að ég reyni að vera í nesi jafn mikið og ég get. Til þess að þetta A&%$# hús verði nú einhvertíman til. Garðar Héðins er svo sannan lega búin að vera okkur betri en enginn í þessum framkv. hér er hann að setja upp nýja töflu fyrir okkur. Annars er ég búin að vera að draga nýtt rafmagn í húsið síðustu daga og tengja rofa og ljós.. svo er ég búin að færa til eldhús skápana í eldhúsinu og klára að klæða eldhúsinnréttinguna. og svo eru allar hurðir komnar í..
im. out k. pesi
9 Comments:
Vá hvað þetta er orðið flott, þú ert greinilega búinn að vera duglegur síðustu daga ;) Baráttukveðjur !!!!
VÁVÁVÁ !
Ekkert smá flott eldhús! Bara til hamingju með þetta allt saman :) Fínt að losna við Frúnna í bæinn í nokkra daga og fá frið hehe ;)
Kv, Andrea
OHHH þið svo dugleg! þetta er sko alveg meiriháttar..Pési..skellir sér kannski í smíðakennarann næst?.......til hamingju bara
Kveðja frá gamla kofanum á Höfðavegi..jóhanna Húsavík
vááá ég á greinilega að fara oftar að heiman:)Þú hefur verið ROSA duglegur og við hlökkum til að koma heim.
kv. Helga og börnin
Æðislegt eldhús og bara allt :) hlakka til að koma við í kaffi til ykkar í sumar:) Þetta er geðveikt hjá ykkur :)
Kveðja frá Höfn Signý og Co
Vá hvað þetta er komið langt. Þið farið bara alveg að geta flutt.
Líst vel á þetta-fallegt eldhús, svo fallegt að þú getur lesið upp húslesturinn þar.
va ví vei vó ... duglegur strákur pési !!!
Hann er öflugur þessi Hreiðar "turbo". Ég er hræddur um að við komumst ekki að í dekurvikunni hjá þér þar sem hann er allavega með mánuð!
Verst að vera ekki nær með hjálparhendurnar. Sé að það er enn eftir að setja höldur á tvær hurðir á eldavélaeyjuna sem snúa út í stofu.
Ekki gleyma því !!
kv.
Magga og Stebbi
Post a Comment
<< Home