Wednesday, July 30, 2008

Að mála bæinn rauðan....

á vel við hér á þessu heimili, nema þá liturinn því hann er hvítur. Ég er sem sagt búin að vera að mála þakskeggið, þakið og reykháfinn á húsinu mínu og þvílíkur munur, er bara búin að eignast glænýtt hús:) Mamma og pabbi hafa verið hér í viku hjá mér og hjálpað mér með þetta allt saman því ég hef komist að því að það er ekki hægt að mála og gæta barna samtímis.
Nú er ég að bíða eftir því að veiðimennirnir komi inn og Siggi, Kristín og börnin eru væntanleg. Pizzan er komin í ofninn og allt reddý:) Svo er útlit fyrir að Árni Pétur verði í fríi í fjóra daga í næstu viku og þá ætlum við að skella okkur eitthvað:)
Þar til næst
Helga

Tuesday, July 22, 2008

Tími á blogg?

Æi góðir hálsar. Ég veit ekki hvað ég er að rembast við að halda úti þessari bloggsíðu. Í þau fáu skipti sem ég nenni að skrifa er ég alltaf voðalega glöð að sjá öll kommentin en þess á milli nenni ég engan veginn að setjast niður og skrifa eitthvað! Já það er vandlifað í þessum heimi finnst ykkur ekki?
Af okkur er það helst að frétta að við erum löngu komin heim úr fríinu um Suður og Suð-austurlandið. Það var yndisleg ferð í alla staði og fengum við gott veður mest allan tímann og gestgjafarnnir stjönuðu við okkur. Hér á Norðurlandinu byrjaði sumarið hins vegar í fyrradag. Við vorum búin að klæða okkur í ullarnærbrækurnar líkt og venjulega þegar við álpuðumst út og á móti okkur tók volgur sunnanblærinn! Við vissum ekki hvernig við áttum að snúa okkur í þessu, rifum okkur úr brókunum og hlupum út í garð:)
Árni Pétur sést lítið heima þar sem hann er á fullu í fylgd við blessaða ána og börnin eru að verða nettpirruð á leikskólaleysinu. Að vísu er alveg með ólíkindum hvað þau eru dugleg að leika sér saman. Maður sér hve gott það er að hafa svona stutt á milli barnanna og því er stóra spurningin hvort skella eigi í eitt fljótlega eða bíða þar til börnin stækki??? Hvað segið þið um það?
Í öðrum fréttum er það helst að mamma og pabbi eru að koma í dag og ætla að stoppa alveg í viku hjá okkur þannig að nú bíðum við eftir þeim. Matta, Hjálmar og börnin kíktu á okkur í gærkvöldi og það var voða gaman. Svo ætlum við Ingibjörg að skella okkur á Eyrina á morgun og eyða þar helst heilum degi og slatta af peningum:) Þar sem ég á ekki von á því að komast í Mall of America þetta árið (snökkt, snökkt) ætla ég að vera skynsöm og fara að huga að jólagjöfum því ef desembermánuður verður svipaður síðasta desembermánuði vinnulega séð þá er ekkert vit að eiga eftir að versla jólagjafir.....að vísu finnst mér það MJÖG ASNALEGT að vera að hugsa um jólagjafir á þessum árstíma en þar sem kreppan ógurlega er að skella á okkur er um að gera að vera skynsamur og versla á útsölum:)
Jæja nú er ég alveg að tæmast!.......jú kannski að ég óski Svanfríði og Héðni Mara til hamingju með afmælin um daginn, Svanlaugi og Rannveigu til hamingju með drenginn sinn og Völla og Þóru til hamingju með nafnið á litla skáfrænda. Læt þetta duga í dag....og örugglega næstu daga ef ég þekki mig rétt;)
kv. Helga ofurbloggari